Varan var hönnuð í tilefni af 100 ára afmæli F U L L V E L D I S á Íslandi 1918 – 2018. Verkefnið var unnið í samstarfi við Steinrúni Óttu Stefánsdóttir vöruhönnuð , og framleitt að hluta hjá Pes grafískri hönnun í Fellabæ. Verkefnið hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Austurlands í byrjun árs 2018
Í hönnunarferlinu spratt umræðan um hvaða G I L D U M væri mikilvægast að fleyta milli kynslóða næstu hundrað árin. Samkomulag varð um að gestrisni og virðing fyrir hverri manneskju óháð kyni og stöðu væri til þess fallið að gera alla að betri M A N N E S K J U M og íslendinga að betri þjóð til framtíðar.
Umsagnir
Það eru engir umsagnir enn.