• UMHVERFISVÆN HÖNNUN

    HH kappkostar að velja vörur sem verða ekki rusl morgundagsins.

  • STAÐBUNDIN HÖNNUN & LISTHANDVERK

    HH vill vera skapandi afl í nærsamfélaginu.

  • HÆGLÆTIS TÍSKA

    Hæglætis tískan í HH er framleidd úr endurunnum efnum en ekki fjöldaframleidd.

HÚS HANDANNA

  • Hús Handanna á Egilsstöðum skilgreinir sig sem umhverfisvæna lífstílsverslun sem velur af kostgæfni vöru sem er góð fyrir fólk & umhverfi. Við val á vörum í HH er ávallt haft í huga virði vörunnar með tilliti til endingar, notagildi, tíðaranda og vistvænna framleiðsluhátta.

  • HH kappkostar að velja vörur sem verða ekki rusl morgundagsins. Varan sem HH höndlar með mun ávallt, fyrst og fremst endurspegla góða hönnun, afburða listhandverk, staðbundið hráefni Íslands & einstaka vöru frá eyjasamfélaginu í Norður Atlantshafi.

  • HH vill vera skapandi afl í nærsamfélaginu og býður nokkrum sinnum á ári uppá lifandi viðburði s.s. Pop up markaði með framleiðendum af svæðinu en einnig viðburði utan við HH s.s. vinnustofur, námskeið og sýningar á samstarfsverkefnum við hönnuði.
HAFA SAMBAND